Tæknitíðindi

Blogg tæknistjóra stjórnlagaráðs

0 notes &

Mánudags statistík

  • Síðasta fimmtudag skriðum við yfir 1.000 heimsóknir innan dags á vefinn okkar. Þann dag staldraði fólk við í að meðaltali 4:20 mínútur og skoðaði rúmlega 4 síður. 
  • Rúmlega 500 athugasemdir við áfangaskjal og erindi á vefnum okkar (og allt málefnalegt)
  • Áhorf á fundi eru að nálgast 500 setur. (Session)
  • Vorum að brjóta 1.000 vina múrinn á facebook.
  • Svo eigum við 22 vini á Twitter ;)

0 notes &

Innranetið fer í loftið

Tíðir ráðsfundir hafa aðeins tafið fyrir loka frágangi innranetsins, en nú liggja starfsreglur fyrir sem þýðir að ég hef aðeins betri hugmynd um hvernig skjöl munu flæða. Þá kláraði ég það sem upp á vantaði og sendi út aðgang á fulltrúa og starfsmenn rétt áðan. Langar að vekja athygli á því að Gunnar og Soffía hjá TM-Software eiga skilið hrós fyrir sína vinnu í þessum vef.

Hér er smá demo fyrir þá sem eru ekki í þeim lukkulega hópi sem mun nota þetta daglega: